Rekstur Golfklúbbsins Odds gekk vel á árinu 2025. Fjölgun félaga, sérstaklega í Ljúflingsaðild og auknar tekjur af æfingasvæði og Ljúflingi lögðu grunn að góðu ári.
Tekjur á árinu 2025 voru 421,6 mkr. samanborið við 347,5 mkr. árinu áður. Gjöld voru 369,9 mkr. samanborið við 316,2 mkr. á árinu 2024. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var 51,7 mkr. sem er mun betri afkoma en á síðasta ári.
Afskriftir námu 27,9 mkr. og niðurstaða ársins er hagnaður upp á rúmar 22,9 mkr.
Hér fyrir neðan má svo nálgast kynningu á ársreikningi aðalfundar GO 2025, sem og ársreikninginn sjálfan.
REKSTRARREIKNINGUR EFNAHAGSREIKNINGUR SJÓÐSSTREYMI FJÁRHAGSÁÆTLUN 2025 (birt að loknum fundi hér)
